13.12.2006 18:01:50 / kristinhb
...og ekkert komið inn á þessa síðu á þessu ári. Mun væntanlega
ekki koma neitt inn á hana meira, nema kannski einhver "skemmtileg"
komment í gestabókina. Ætla að einbeita mér að
idunnulfs.barnaland.is, held að það sé meira en nóg fyrir mig af
netstússi.
Yfir og út Kristín
»
15.09.2005 12:25:45 / kristinhb
...það er naumast hvað maður byrjar alltaf á því að vera
samviskusöm á haustin í náminu, það eru greinilega aðrir
http://www.blog.central.is/bitralif/?page=comments&id=892169.
Það er samt spurning hvað það varir lengi...
»
02.08.2005 12:54:44 / kristinhb
....að stofna blogg og ætla sér að hafa eitthvað brilliant
notendanafn og password að maður bara man það ekki þegar að því
kemur að nota það! Svo nennir maður ekkert að hugsa út í það meira,
fyrr en manni leiðist einn daginn í vinnunni og reynir að pikka það
upp, og það tekst!
»
06.02.2005 21:43:53 / kristinhb
Nú er ég
alveg búin að missa þolinmæðina á þessum erlendu bloggsíðum,
það er alveg hundleiðinlegt að reyna að ráða við þær (kannski
að einhverju leyti letin í mér). Svo ég hef ákveðið að reyna
fyrir mér á einni íslenskri...sjáum hvað setur. Til þess að
sjá afrakstur síðustu tilraunar þá er hægt að fara inn á
http://kaystone.blogspot.com/.
»